Viva la france

Vinir mínir frá Frakklandi hafa verið heimsókn hjá mér undanfarna daga. Við skruppum í siglingu á bátnum og þeim datt það snjallræði í hug að stökkva í sjóinn. Eitthvað sem fæstir Íslendingar gera ótilneyddir en Yannick og Krikri fannst þetta besta skemmtun. Við veiddum líka aðeins en ég er varla búinn að jafna mig á ormahreinsun úr þorskinum úr síðustu veiðiferð svo það var sem betur fer lítið veitt.

Tara dóttir mín tók fyrsta myndskeiðið á videóvélina, þetta er einhver sérstök myndatökutækni sem hún hefur tileinkað sér LoL, best að hafa bara gaman af því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband