Tristan Logi

Sonur minn átti eitt gullkorn um daginn. Við vorum að gera okkur klár í skólann og Tara kvartaði um að hún finndi til í fætinum þar sem hún var með marblett! Tristan skoðaði marið af miklum áhuga.

TL: Ég er líka með svona blett.

Ég: Nú!

TL: Já, en hann stækkar og stækkar! ég held ég sé að verða brúnn eins og Jen.

Ég: Jáhh er það? En er það ekki bara allt í lagi.

TL: Neihh... ég vil ekki vera brúnn.

Ég: (Mjög hissa) Núhh.. hvað er ekki bara fínt að vera brúnn?

TL: Neihei, ég vil sko ekki tala ensku! 

Það má kannski bæta við að áður um helgina þegar við Tara vorum búinn að vera að læra nokkur orð í ensku þá lýsti hann því yfir að hann ætlaði sko ekki að læra þetta. Hann ætlaði sko að læra "Rússlenzku" Smile

blog_1

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband