10.7.2008 | 13:26
Viva la france
Vinir mínir frá Frakklandi hafa verið heimsókn hjá mér undanfarna daga. Við skruppum í siglingu á bátnum og þeim datt það snjallræði í hug að stökkva í sjóinn. Eitthvað sem fæstir Íslendingar gera ótilneyddir en Yannick og Krikri fannst þetta besta skemmtun. Við veiddum líka aðeins en ég er varla búinn að jafna mig á ormahreinsun úr þorskinum úr síðustu veiðiferð svo það var sem betur fer lítið veitt.
Tara dóttir mín tók fyrsta myndskeiðið á videóvélina, þetta er einhver sérstök myndatökutækni sem hún hefur tileinkað sér , best að hafa bara gaman af því.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.