Færsluflokkur: Bloggar
25.9.2008 | 19:40
Rocketman
Þessi gæi er náttúrulega mega töffari. Þetta hlýtur að vera meiriháttar gaman að fljúga þessu tæki sem er knúið áfram af fjórum litlu þotumótorum (Jet turbine). Hann stýrir þessu með þyngdarflutningi og flugtakið er framkvæmt með því að stökkva úr flugvél og breiða þá úr vængnum og ræsa mótorana. Síðan nær hann allt að 300km hraða á þessu. Hann lendir síðan með því að opna fallhlíf og lenda í henni. Hann hefur flogið lengst í einu í 11 mínútur.
Margir hafa útbúið og reynt að smíða nothæfan þotuvæng en með misjöfnum árangri. Þessi útfærsla virðist vera vel heppnuð og hefur góða flugeiginleika og er tiltölulega auðvelt að stjórna.
Yves Rossi er 48 ára og starfar sem atvinnuflugmaður hjá flugfélaginu Swiss.
Eldflaugarmaðurinn hættir við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2008 | 00:32
Hábunga
Rölti á Hábungu í dag í sól logni og 16° hita, bara næs. Þetta var áttunda ferðin á Esjuna í sumar.
Fór á fyrirlestur í kvöld í Snarfara um ferðir nokkurra Norðmanna á seglbátnum Jotun. Þeir ætluðu að sigla hina frægu NorðVestur leið eins og Vilhjálmur Vilhjálmsson en urðu að hverfa frá vegna íss. Báturinn þeirra er nú geymdur hér í Reykjavík í vetur og ekki að vita nema þeir reyni aftur næsta sumar. Það væri nú ekki leiðinlegt að fara með.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.8.2008 | 21:49
Móskarðshnúkar
Gekk á Móskarðshnúka í dag. Enn einn tindurinn sem ég hef margoft komið á en aldrei gengið á (á þyrlunni). Flott veður í dag, sól og smá gola.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2008 | 10:35
Hver kannast ekki við...
Þessi viðbrögð eru nú kannski ekkert svo óskiljanleg
Sem minnir mig á það að sláttuorfið mitt fór ekki í gang í vor... kannski maður dusti rykið af haglabyssunni. Eða kannski ég rífi það bara í sundur og geri við það.
Skaut óþæga garðsláttuvél | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2008 | 23:26
Sumarmyndir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2008 | 14:56
Prince Rupert´s dropi
Prince Rupert´s dropi er gerður með því að láta dropa af bráðnu gleri detta í fötu með köldu vatni. Snöggkælingin gerir það að verkum að ytra lag glersins kælist hraðar en glerið inn í dropanum sem veldur miklum styrkleika. Ef síðan halinn af glerkúlunni er brotinn þá splundrast dropinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2008 | 09:58
Hughes 500
Frábærar vélar og skemmtileg vinna. Mann langar eiginlega tilbaka til Grænlands í slingvinnu. Ekki mikið vesen í kringum vinnuna þar.
Þessir eru greinilega ekki að gera þetta í fyrsta skipti. Skilodge support í austurrísku ölpunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.7.2008 | 13:26
Viva la france
Vinir mínir frá Frakklandi hafa verið heimsókn hjá mér undanfarna daga. Við skruppum í siglingu á bátnum og þeim datt það snjallræði í hug að stökkva í sjóinn. Eitthvað sem fæstir Íslendingar gera ótilneyddir en Yannick og Krikri fannst þetta besta skemmtun. Við veiddum líka aðeins en ég er varla búinn að jafna mig á ormahreinsun úr þorskinum úr síðustu veiðiferð svo það var sem betur fer lítið veitt.
Tara dóttir mín tók fyrsta myndskeiðið á videóvélina, þetta er einhver sérstök myndatökutækni sem hún hefur tileinkað sér , best að hafa bara gaman af því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2008 | 13:15
Heiðmörk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)